top of page

Sígildir Sunnudagar: Chalumeaux tríó-ið og vinir

fim., 22. maí

|

Norðurljósasalur Hörpu

Chalumeaux-tríóið og Kammerkvartettinn flytja tónlist eftir W.A. Mozart og samferðamenn hans.

Sígildir Sunnudagar: Chalumeaux tríó-ið og vinir
Sígildir Sunnudagar: Chalumeaux tríó-ið og vinir

Time & Location

22. maí 2025, 20:00

Norðurljósasalur Hörpu, Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland

About the event

Chalumeaux-tríóið var stofnað árið 1990 af klarínettuleikurunum Kjartani Óskarssyni, Óskari Ingólfssyni og Sigurði I. Snorrasyni. Við lát Óskars árið 2009 tók Ármann Helgason sæti hans í tríóinu. Þeir félagar leika á flestar gerðir klarínettuhljóðfæra. 

Þungamiðjan á verkefnaskrá Chalumeaux-tríósins hefur ávallt verið samtímatónlist og á liðnum árum hefur tríóið flutt fjölmörg verk, innlend og erlend, sem mörg hver hafa verið samin sérstaklega fyrir tríóið. Annar stór þáttur á verkefnaskránni eru verk Mozarts. Á þessum tónleikum verða flutt verk Mozarts fyrir klarínettur og bassetthorn, bæði fullfrágengin verk, en einnig tónsmíðar sem hann hafði ekki að fullu lokið við þegar hann lést, en seinni tíma menn hafa svo fullunnið. Á efnisskránni er líka að finna fimm næturljóð og eina kansónettu fyrir þrjá söngvara, klarínettur og bassetthorn, sem Mozart samdi á árunum 1783-1788 fyrir sig og vini sína til að leika og syngja á góðum samverustundum í heimahúsum. Að auki verða fluttar aríur, dúettar…

Share this event

bottom of page